Reglur
- Verkefnin eiga að byggjast á notkun gagna úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls.
- Verkefnin þurfa að vera ný og mega ekki hafa birst áður.
- Engin skilyrði eru um eðli verkefnis. Verkefnið þarf ekki endilega að vera hugbúnaður.
- Ef um hugbúnað er að ræða er hvatt til þess að hann sé skrifaður undir leyfum opins hugbúnaðar.
- Skilin eru ekki leynileg. Vinningsverkefni og önnur efnileg verkefni verða kynnt á þessari síðu að keppninni lokinni.
- Dómnefnd (kynnt 11. nóvember) mun velja verðlaunaverkefnin. Lögð verður áhersla á eftirfarandi þætti:
- Útfærslu
- Frumleika
- Notagildi
- Verkefnislýsingu
- Keppnin er öllum opin nema starfsmönnum Já og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
- Tilkynnt verður um fyrirkomulag verðlaunaafhendingar 11. mars 2010.